Kjánabjánar

Arndís, Grétar, Helga, Herdís, Margrét, Ragnar, Signý, Svenni og Tinna Ósk

22.09.2007 22:49:13 / Margrét

komin til barcelona

hæhæææææ jæja núna er ég komin til barcelona :D við Sandra lentum klukkan 9 og töskurnar voru endalaust lengi að koma en við töluðum við hauka strákana á meðan og borðuðum nammi. Fórum svo út og fengum okkur taxa kallinn í taxanum talaði ekki ensku þannig að hahaha við vorum að reyna að fá að vita hversu margir byggju hérna einn gaurinn í flugvélinni sagði að það byggju 15 milljónir en okkur fannst það of spúkí til að vera satt.

Við: Við sögðum how many people lives here?

hann bara que???????

við: öööööööö persons barcelona??? Iceland 300 000 ok?

hann: no entjendo

Við: kintheimilljon personas barcelona???

hahaha þá náði hann þessu og sagði nono does milljon.

 

svo sáum við húsið og það er svo fallegt, stór blokk á flottri götu. Stórt svart hlið og húsvörður og allt, ljósakróna í anderinu. Svo var komið að því að fara í lyftuna = lítil rimlalyfta hahaha ekki góð fyrir lofthrædda a.k.a söndru en þetta mun venjast hahahaha. svo er heldur ekki sniðugt að fara í hana ef maður er mjög feitur annaðhvort festist maður í henni eða kemst ekki upp vegna þunga :D. En mér finnst hún mjög sæt :D svona krúttulyfta. íbúðin er svo stór að það er ekki hægt að tala við manneskjurnar í hinum endanum haha. íbúðin er hvít, græn og viðarlituð mjög flott og hátt til lofts og útskornar hurðir á milli parta :D Svo má ekki gleyma því að það er bar í kjallaranum hahaha einhver snobb bar hverfisins. ég get fylgst með allskonar aðgerðum út um gluggann minn þar sem ég horfi inn í glugga sjúkrahúss hahaha sá einmitt eina fá gips í dag, svo fór hún út í glugga að reykja hahahaha gaman að þessu. En annars er búið að banna reykingar á mörgum stöðum sem er frábært jessssss eins og heima ég var ekki að búast við því, Ég er með svona ekta spænskar snúrur á svölunum í herberginu mínu þar sem þvotturinn hangir í 20 metra hæð :D hahahaha en það er ekkert mál ef hann dettur þ´bara tala ég við eina 95 ára gamla konu sem býr í neðstu íbúðinni og fæ að fara í garðinn hennar að ná í þvottinn :P en annars er aldrei rok hérna. Ég skrapp niður á barinn í gær, endaði með því að ég og strákarnir fengum far með spánverjum á klúbb sem heitir razzmatazz og er 2 klst í burtu ef maður labbar. hann er á 3 hæðum mjög flottur og flott fólk þar inni líka :P hehe en jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili bæbæ

Signý skrifaði
Hæhæ hahah já úff hvað ég hlakka til að koma að heimsækja þig það verður geðveikt :D
Helga skrifaði
Velkomin til Barcelona, þetta verður algjört ævintýri hjá þær, njóttu þess bara, endilega vertu líka dugleg að splæsa inn myndum, p.s. Signý dúllan mín ég held að það sé líka kominn tími á færslur fá þér elskan!
margret skrifaði
það eru sko komnarmyndir á myspacið mitt
Signý skrifaði
heheh já kíktu endilega á síðuna okkar Herdísar...komnar myndir og færslur frá okkur en já ég þarf samt að henda inn færslu hér líka ég veit það :D

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Helga fer til Flórída
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 728 dögum
Margret fer til barcelona
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 907 dögum
Arndís til Tenerife
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 808 dögum
20 �?�?�?¡ra
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1039 dögum
Signý flytur með Herdísi til Nice
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 932 dögum
Klukkan
Bíómyndir online
Klukkan
Dagsetning
15. mars 2010